Skip to main content

Fimmta árið í röð

By febrúar 13, 2015maí 27th, 2016Blogg, Viðurkenningar

Síðastliðin fimm ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki teljast til fyrirmyndar að teknu tilliti ýmissa þátta sem varða rekstur og stöðu þeirra. Í ár eru það 577 fyrirtæki sem komast á listann af þeim 32.690 sem skráð eru í hlutafélagaskrá, eða um 1,7%.

Svona hófst þetta.
Það var árið 2011 að Creditinfo hóf að vinna greiningu byggða á styrk- og stöðugleikamati félagsins en hugmynd var að skapa hvatningu í kringum þau fyrirtæki sem voru að standa sig vel. Samskonar verðlaun voru þekkt annars staðar frá þar á meðal í Finnlandi þaðan sem hugmyndin var sótt.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

Hafa skilað ársreikningum til RSK síðustu þrjú ár
Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
Rekstrarform ehf., hf. eða svf.

Umslag hefur hlotið titilinn núna fimm ár í röð og fær því þennan gyllta skjöld af tilefni þess.