Skip to main content

Fyrir hönnuði

Helstu stærðir umslaga

Hér er að finna helstu stærðir umslaga.
Hafa skal í huga að staðsetning á glugga getur verið breytileg um nokkra millimetra.

  • C6 (kortaumslag), 114 × 162 mm
  • M65 (algeng stærð í skrifstofunotkun), 112 × 223 mm
  • C65 (vélpökkunarumslag), 114 × 229 mm
  • C5 (fyrir A5 bæði til vélpökkunar og almennrar notkunar), 162 × 229 mm
  • C4 (hentugt að setja A4 í þetta, með eða án glugga), 229 × 324 mm
  • B4 (hægt að setja meira magn af A4 í þessa stærð en kemur án glugga), 250 × 353 mm

Umslag hefur allt frá stofnun verið í fararbroddi á sviði prentunar og gagnavinnslu ásamt því að bjóða upp á heildarlausnir á sviði prentunar, þar á meðal persónugerða prentun eða almenna prentun í viðskiptaskyni. Á það bæði við um þarfir hönnuða eða almennra viðskiptavina.

Meðal annars önnumst við prentun á:

  • markpósti,
  • kynningarefni,
  • nafnspjöldum,
  • nafnamerkingum,
  • umslögum.

Við hjá Umslagi bjóðum hönnuðum og öðrum aðilum upp á víðtæka prentþjónustu, sem felur meðal annars í sér þjónustu á sértækum sviðum eins og prentun greiðsluseðla, reikninga, fréttabréfa, boðskorta og ársskýrslna.

Varla þarf að taka fram að starfsfólk Umslags býður hönnuðum og öðrum jafnframt upp á vandaða og hraða þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Hafðu samband og við sinnum þörfum þínum varðandi hvers konar prentun!

Notaðu Prentboxið

Fáðu aðgang að prentboxi á netinu, þar sem þú getur vistað prentgögn, breytt þeim og pentað

Umslag bíður viðskiptavinum sínum aðgang að prentboxi á netinu, þar sem þeir geta vistað prentgögn, breytt þeim að vild og gengið frá pöntunum í framhaldinu. Í prentboxkerfinu er hægt að fylgjast með pöntunum og fá heildaryfirsýn yfir allar aðgerðir.

Kostirnir við notkun prentboxa eru meðal annars eftirfarandi:

  • fjölbreyttir útlitsmöguleikar,
  • tryggir ákveðna hönnun, liti og leturgerð,
  • skjölin tilbúin til prentunar og send rafrænt í prentun,
  • mikill tímasparnaður og minni kostnaður,
  • minni aðkeypt þjónusta,

engin þörf á sérstökum hugbúnaði. Nettenging er allt sem þarf.