Á hverju ári heldur starfsfólk Umslags í óvissuferð og er dagskránni haldið vandlega leyndri. Það var því spenntur hópur sem lagði af stað laugardaginn 15. mars s .l. á vit óvissunar. Fyrsti viðkomustaðurinn var við Gullfoss og Geysi þar sem sjóðheit kjötsúpa var snædd og að því búnu var Gullfoss skoðaður í nístingskulda.
Að því loknu stóð til að fara á snjósleða en vegna veðurs var ekki hægt að framkvæma það og fór þá bílstjórinn okkar hjá Amazingtours í smá jeppaferð og var rúllað upp í einn snjókarl á toppnum.
Þaðan var brunað beint á Laugarvatn og skelltum okkur í Fontana laugar þar sem gufuböðin voru skoðuð og spriklað í Laugarvatni. Það var ansi kalt og hressandi. Að því loknu var farið í kvöldmat á Cafe Mika Reykholti. Eftir góðan snæðing var keyrt í rólegheitum heim með viðkomu í Hveragerði þar sem stoppað var á einum veitingastað og haldin var stutt pílukeppni við mikinn fögnuð.
Hópurinn kom svo til Reykjavíkur eftir 11 tíma ferð með ótrúlegar minningar í farskeytinu. Enn einni óvissuferðinni var lokið, með vissu um, að hún yrði endurtekin að ári.