Marco Vroomen hefur tekið við nýrri stöðu hjá Umslag sem framleiðslustjóri. Með þessu breytast ýmsir verkferlar til hins betra og yfirsýn á verkefni verður skýrari. Marco hefur unnið hjá Umslagi í tæp 12 ár og er menntaður slökkviliðsmaður frá Hollandi. Hann byrjaði feril sinn í pökkunardeildinni sem starfsmaður á pökkunarvél og hefur hægt og sígandi unnið sig upp hjá fyrirtækinu ásamt því læra íslenskuna reiprennandi. Hann er hluti af öryggisteymi Umslags og fór með okkur í gegnum ISO 27001 vottun fyrirtækisins sem við fengum árið 2013. Hann hefur verið verkstjóri pökkunardeildar með góðum árangri undanfarin misseri og mun hann nú einnig taka yfir stjórn prentdeildarinnar og fær starfstitilinn framleiðslustjóri.