Skip to main content

Sjötta árið í röð

By febrúar 9, 2016Blogg, Umslag, Viðurkenningar

Síðastliðin sex ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki teljast til fyrirmyndar að teknu tilliti ýmissa þátta sem varða rekstur og stöðu þeirra. Í ár eru það 682 fyrirtæki sem komast á listann af þeim 35.000 sem skráð eru í hlutafélagaskrá, eða um 1,9%.

Svona hófst þetta.
Það var árið 2011 að Creditinfo hóf að vinna greiningu byggða á styrk- og stöðugleikamati félagsins en hugmynd var að skapa hvatningu í kringum þau fyrirtæki sem voru að standa sig vel. Samskonar verðlaun voru þekkt annars staðar frá þar á meðal í Finnlandi þaðan sem hugmyndin var sótt.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

Hafa skilað ársreikningum til RSK síðustu þrjú ár
Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
Rekstrarform ehf., hf. eða svf.