Skip to main content

Bolarnir bestir

By nóvember 20, 2013maí 27th, 2016Blogg, Starfsmenn

Árlega er haldið keilumót hjá starfsmönnum Umslags og eitt slíkt var haldið 14. nóvember s. l. Fjörið hófst með því að fylgst var með leik Íslendinga og Króata og segja má að frammistaða íslenska liðsins hafi orðið til þess að mikið keppnisskap hljóp í hópinn og sýndu liðin þrjú gríðarlega góða takta og mátti sjá margar óvæntar fellur sem til urðu úr makalausum köstum.

Þetta árið var það liðið Bolarnir sem sýndu bestu taktana og unnu keppnina . Að venju var tilnefndur bikarmeistari, bjartasta vonin og mestu vonbrigðin. Þessum tilvikum var tekið misvel og mátti sjá tár á hvarmi eða breið bros við þá verðlaunaafhendingu.

Hin liðin eiga harma að hefna og það verður spennandi að taka þátt í mótinu á næsta ári.